Vegagerðin virkjar stafræn söfn sín með Loaloa
Vegagerðin og Loaloa hafa gert með sér samning um að samþætta og virkja gríðarlegt magn stafræns efnis stofnunarinnar í einni miðlægri gátt. Studio, kjarnalausn Loaloa, mun gera Vegagerðinni kleift að nýta stafrænar eignir sínar á mun skilvirkari máta en áður.
Almannarómur styrkir Loaloa til að innleiða íslenska máltækni
Loaloa hefur hlotið styrk úr Skerfi, sjóði Almannaróms, til að innleiða íslenska máltækni í Studio, hugbúnaðarlausn félagsins. Verkefnið styður við þróun Loaloa til að lyfta upp íslensku efni: myndböndum, hljóði, myndum, skjölum og öðrum stafrænum gögnum.







