Markmiðið er að gera íslensk efnissöfn leitanlegri, aðgengilegri og nýtilegri. Í stað þess að efni liggi í möppum, drifum og gömlum kerfum án samhengi getur Loaloa greint það, flokkað það og gert það aðgengilegt með náttúrulegri leit.
Íslenskan þarf að virka í alvöru kerfum
Fyrirtæki og stofnanir á Íslandi framleiða sífellt meira stafrænt efni. Til að það nýtist þarf íslensk talgreining, textagreining, skjátextun og leit að vera hluti af vinnuflæðinu frá upphafi.
Styrkurinn frá Almannarómi gerir Loaloa kleift að færa íslenska máltækni nær daglegri notkun hjá þeim sem vinna með stór efnissöfn. Þetta snýst ekki bara um varðveislu. Þetta snýst um að gera íslenskt efni virkt, finnanlegt og verðmætt.
Sjá nánar á síðu Almannaróms: Skerfur 2025 - metaðsókn og fjölbreyttar lausnir
