Loaloa varð til úr raunverulegri reynslu af stórum fjölmiðlainnviðum. Teymið hafði séð sama vandamálið aftur og aftur: fyrirtæki og stofnanir framleiða sífellt meira efni, en stór hluti þess verður óaðgengilegur, óflokkaður og vannýttur.

Frá vandamáli yfir í vöru

Í Startup Supernova fékk Loaloa tækifæri til að setja vandann í skýrara samhengi: þetta er ekki bara geymsluvandamál. Þetta er leitar-, greiningar-, dreifingar- og stjórnunarvandamál.

Úr því varð skýrari vara og skýrari flokkur. Loaloa byggir Archive Intelligence fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja breyta stafrænum efnissöfnum í virkan þekkingargrunn. Hraðallinn var gott skref í þeirri vegferð og staðfesti að tækifærið nær langt út fyrir Ísland.

Hægt er að kynna sér fyrirtækin tíu sem tóku þátt nánar á heimasíðu Klak: Tíu sprengistjörnur Startup Supernova 2023

Í lok hraðalsins fór fram skipulögð dagskrá í Grósku þar sem verkefnin sem tóku þátt fengu að kynna sig. Hér að neðan má sjá upptöku af okkar kynningu.