Loaloa hefur undanfarið ár byggt upp sérhæfða hugbúnaðarlausn fyrir fyrirtæki og stofnanir sem þurfa að ná stjórn á stórum stafrænum efnissöfnum. Varan sameinar stafræna eignastýringu, gervigreind, leit, miðlun, dreifingu og aðgangsstýringu í einu kerfi.

Reynsla, agi og stærri sýn

Að fá Ursus inn í hluthafahópinn er mikilvægur áfangi fyrir félagið. Loaloa fer brátt úr markvissri uppbyggingu yfir í markaðssókn og þarf þar bæði tæknilegt öryggi og skýra viðskiptalega forgangsröðun.

Með virku stjórnarstarfi og reynslu úr fjárfestingum, uppbyggingu og rekstri fær Loaloa aukinn slagkraft með innkomu Ursus. Verkefnið er stórt: að hjálpa fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum að breyta stafrænum söfnum í lifandi þekkingargrunn.