Loaloa vinnur að því að gera myndbönd, hljóð, myndir og skjöl leitanleg, greind og nýtanleg í einu kerfi. Aðgangur að öflugum reikniaflsinnviðum skiptir miklu máli þegar unnið er með stór gagnasöfn, máltækni, talgreiningu, þýðingar, skjátextun og margmiðlunargreiningu.

Meira afl fyrir minni tungumál

Sérstök áhersla Loaloa er á íslensku og önnur tungumál þar sem gögn og tilbúnar lausnir eru takmarkaðri. Með Leonardo fær Loaloa svigrúm til að prófa, þróa og betrumbæta líkön sem geta skilað raunverulegu virði fyrir fyrirtæki, stofnanir og opinbera aðila sem sitja á stórum en vannýttum stafrænum söfnum.

Þetta passar beint inn í sýn Loaloa, sem er að breyta óvirkum söfnum í geymslu yfir í lifandi þekkingargrunna.